top of page

VERKVIST hefur samstarf við LCA.no, norskt ráðgjafafyrirtæki í umhverfisyfirlýsingum vöru (EPD) 


Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að VERKVIST hefur hafið samstarf við LCA.no, norskt ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í umhverfisyfirlýsingum (EPD) á alþjóðamarkaði.

Samstarfið styrkir stöðu fyrirtækisins í átt að vistvænni þróun í mannvirkjagerð og gerir okkur kleift að ráðast saman í fjölbreyttari verkefni af öllum stærðargráðum. Með umhverfisyfirlýsingum (EPD) aukum við gegnsæi um umhverfisáhrif byggingarefna í gegnum allan lífsferil þeirra frá hráefnaöflun til urðunar.


Umhverfisyfirlýsingar vöru, betur þekkt sem Environmental Product Declaration (EPD), eru öflug verkfæri fyrir neytendur og framleiðendur sem krefjast aukins gagnsæis í umhverfismálum. Þessar yfirlýsingar veita skýrar, mælanlegar og vottaðar upplýsingar um umhverfisáhrif vara út frá niðurstöðum lífsferilsgreininga (LCA). Umhverfisyfirlýsingar verða sífellt mikilvægari fyrir framleiðendur þar sem framkvæmdaaðilar óska í auknum mæli eftir slíkum upplýsingum þegar votta á byggingu t.d. með Svaninum eða BREEAM. EPD blöð munu einnig verða lykilþáttur fyrir hönnuði við val á byggingarefnum, í ljósi nýrra ákvæða í byggingareglugerð um kröfu á lífsferilsgreiningum, sem taka gildi þann 1. september 2025.


2 woman, employees at Verkvist, 2 blond woman
Hulda Einarsdóttir og Alma D. Ívarsdóttir eru meðal sérfræðinga VERKVISTAR í EPD blöðum

Minni umhverfisáhrif og aukin samkeppnisfærni

EPD blöð eru ekki aðeins gagnleg fyrir framleiðendur heldur einnig hönnuði, framkvæmdaaðila og aðra hagaðila í byggingariðnaðinum. Umhverfisyfirlýsingar auka gagnsæi með því að veita skýrar og vottaðar upplýsingar um umhverfisáhrif vara sem gera neytendum kleift að taka upplýstar ákvarðanir um val á vörum í samræmi við auknar kröfur um sjálfbærni, vottanir og reglugerðir í byggingariðnaðinum.


Innleiðing á EPD blöðum getur dregið úr kostnaði og úrgangi sem leiðir til betri rekstrarhagkvæmni og minni umhverfisáhrifa. Með því að auka skilvirkni er einnig hægt að koma betur auga á tækifæri til samkeppnisforskots og vaxtar.


Um samstarfið

Samstarfið milli LCA.no og VERKVIST verkfræðistofu miðar að því að sameina krafta sína og sérþekkingu á sviði umhverfismála. Í sameiningu er ætlunin að gera byggingar heilnæmari, vistvænni og sjálfbærari.


“Við erum stolt af því að vera valin sem samstarfsaðili LCA.no á Íslandi. Íslenski byggingariðnaðurinn er að stíga stórt stökk. Æ fleiri leggja sig fram við að uppfylla lögmætar kröfur og vaxandi væntingar neytenda. Samstarfið styrkir okkur í að veita hágæða þjónustu á markaðnum á þessu sviði og verða leiðandi í ráðgjöf um sjálfbærni og EPD þjónustu á Íslandi. Innan fyrirtækjanna er verðmætur mannauður með áratuga þekkingu, reynslu og sérmenntun í byggingariðnaðinum, mannvirkjagerð og umhverfisgreiningum“, segir Alma D. Ívarsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og umhverfismála hjá VERKVIST.

Um VERKVIST

Hjá VERKVIST verkfræðistofu er lögð rík áhersla á að byggingar séu fyrir fólk, heilsu, vellíðan og að lágmarka vistspor bygginga. Fyrirtækið sem stofnað var þann 1. mars 2024 af Ölmu D. Ívarsdóttur, Böðvari Bjarnasyni og Sylgju Dögg Sigurjónsdóttur hefur vaxið ört og telur nú 11 sérfræðinga með yfirgripsmikla, þverfaglega þekkingu og reynslu.


Sem fyrsta íslenska fyrirtækið sem sérhæfir sig í heilnæmi bygginga er sterk áhersla lögð á innivist og umhverfismál. Unnt er að veita ráðgjöf allt frá hönnunarstigi og í gegnum allt ferlið til að tryggja að byggingar séu bæði hagkvæmar í rekstri og umhverfisvænar. VERKVIST býður nú upp á fjölbreytta þjónustu í umhverfislýsingum (EPD), Svansvottunum og BREEAM ásamt byggingatækni, byggingareðlisfræði, innivist, orkusparnaði, loftgæðum, rakaöryggi og rakaskemmdum.


Um LCA.no 

LCA.no var stofnað árið 2016 en grunnur fyrirtækisins byggir á yfir 35 ára rannsóknum, þróun á LCA lífsferilsgreiningum og EPD umhverfislýsingum. Fyrirtækið var stofnað á sinni tíð af rannsóknastofnuninni Norsus og er með viðskiptavini í fjórum heimsálfum. Nánari upplýsingar um LCA.no má finna á vefsíðu fyrirtækisins


„Samstarf okkar við VERKVIST marka tímamót fyrir LCA.no með frekari tengingum við íslenska markaðinn. Með því að sameina sérfræðiþekkingu fyrirtækjanna styrkjum við okkur í verkefnum í tengslum við umhverfisvottanir og EPD. Með því eflum við samkeppnishæfni fyrirtækja í sjálfbærni“, segir Trond Edvardsen, forstjóri LCA.no. 

Nánari upplýsingar um samstarfið veita: 

Forstöðukona umhverfismála og sjálfbærni, VERKVIST


Forstöðukona innivistar og lýðheilsu, VERKVIST


Trond Edvardsen, trond@lca.no, +47 905 71 091  CEO, LCA.no

 

Terese Troy Prebensen, terese@lca.no, +47 958 61 254 CFO, LCA.no 

Commentaires


bottom of page