Orku- og efnaverkfræðingur, Jóhannes Ólafsson, hefur störf hjá VERKVIST
Sérfræðingar okkar hjá VERKVIST eru leiðandi á sviði rakaástands bygginga, innivistar, rakaskemmda, loftgæða, sjálfbærni, vistvottana og heilnæmi bygginga. Teymið samanstendur af sérhæfðum ráðgjöfum úr húsasmíði, verkfræði, tæknifræði, líffræði og lýðheilsu.
Við skiljum mikilvægi þess að skapa umhverfi sem er heilsusamlegt, öruggt og örvandi fyrir alla.
Saman getum við skapað framúrskarandi rými sem styðja við bæði umhverfi og velferð notenda.
Viðskiptavinir okkar eru arkitektar, hönnuðir, opinberar stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar. Við leggjum metnað okkar í að veita faglega og heiðarlega ráðgjöf.
Við bjóðum upp á lausnir sem eru sérsniðnar að einstökum þörfum og markmiðum hvers viðskiptavinar og veitum persónulega þjónustu.
Við hvetjum þig til að hafa samband til að fræðast nánar um hvernig VERKVIST getur stutt þig eða þitt fyrirtæki í að ná framúrskarandi árangri til að bæta innivist eða ná fram vistvænum byggingum á ábyrgan og heilbrigðan hátt.
Nýbyggingar eða endurbætur. Svansvottun, Lífsferilsgreiningar (LCA)
Umhverfisgreining, slagregns- og loftþéttleikaprófanir.
Mat á loftgæðum með síritum sem nema meðal annars C02, rokgjörn lífræn efni (VOC), svifryk, formaldehýð og mengun frá umferð,
Ástandsskoðun, rakaskimun og sýnataka vegna gruns um rakavandamál eða myglu. DNA ryksýni til að fá stöðuna á loftbornum örverum .
VERKVIST samanstendur af einstöku teymi með yfirgripsmikla, þverfaglega þekkingu og reynslu. Rík áhersla er lögð á að byggingar eru fyrir fólk, heilsa og vellíðan eru í fyrirrúmi og að vistspor bygginga sé lágmarkað.
Teymið er ört stækkandi og erum við spennt fyrir að kynna þá sérfræðinga til leiks eftir því sem á líður.